9.1.2009 | 08:39
Hvað voru stjórnvöld að hugsa ?
Stjórnvöld réttu brennuvörgunum eldspíturnar til þess að kveikja í Íslandi. Bankarnir voru einkavæddir án þess að nokkurt regluverk væri sett utanum þá.
Brennuvargarnir í þessu tilviki eru eigendur og stjórnendur bankanna sem gjörsamlega brugðust því trausti sem þeir fengu upp í hendurnar. Stjórnvöld stjórn SÍ og Fjármálaeftirlitið fá algera falleinkunn í öllu þessu ferli.
Er í raun einhver glóra í því sem hefur verið gert undanfarin ár ?
Ríkið tapar milljörðum á veðlánum Seðlabankans | |
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt |
Athugasemdir
Svarið er auðvitað Þórhallur að stjórnvöld voru alls ekkert að hugsa. Þau voru bara að fíla sig í eyðslu á sköttum af gervihagnaði bankanna. Þrátt fyrir að varað væri við þessu aftur og aftur og aftur þráuðust þau við að hætta á fylleríinu fálmuðu bara áfram með augun lokuð og slökkt á heilbrigðu skynseminni sem hefði átt að segja þeim að bregðast þyrfti við.
Alfreð Jónsson (IP-tala skráð) 9.1.2009 kl. 08:57
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.