Meðalið er að drepa sjúklingin

Íslenskt atvinnulíf er orðið fársjúkt. Það er talað um að 3500 fyrirtæki séu á leiðinni í gjaldþrot. Meðalið sem ríkisstjórnin gefur atvinnulífinu eru 18 % stýrivextir.

Hvaða vit er í svona skottulækningum ? Hvað telja stjórnvöld að það taki langan tíma að gera út af við sjúklingin með þeim meðulum sem boðið er upp á ?

Þegar litið er á verk stjórnvalda er ekki hægt að sjá nokkra einustu skynsemi í því sem verið er að gera til þess að lækna hagkerfið. Flestar aðgerðir virðast fela í  sér að reyna að drepa hagkerfið.

Í raun er það furðulegt að þessir háu vextir fái ekki meiri umfjöllun í fréttunum miðað við hvað þetta er mikið rugl.

Lækkið vextina strax og verðbólguna líka handvirkt. Ef það verður ekki gert  er stutt í að sjúklingurinn gefi upp öndina.

 

Þessi pistill fór óvart undir ranga frétt. Slóðin fyrir neðan er fréttin sem vísa átti til.

http://www.mbl.is/mm/vidskipti/frettir/2009/01/10/hair_vextir_og_hoft/

 

 


mbl.is Of snemmt að segja til um skilin
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 Smámynd: Axel Þór Kolbeinsson

Þegar maður skoðar það að fyrirtækjum fjölgaði um 20.000 eða 57% (úr 35.000 í 55.000) frá 1999-2007 þá hlýtur maður að spyrja sig hvort það hafi í alvörunni verið rekstrargrundvöllur til framtíðar fyrir öll þessi fyrirtæki.

Axel Þór Kolbeinsson, 10.1.2009 kl. 13:35

2 identicon

Ég las þessa sem er með skynsemi og góðum ráðunum. Hvaða hagfræðibók last þú í skóla ?

thokri@rarik.is (IP-tala skráð) 11.1.2009 kl. 23:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband